UNDRA -Tólg
Couldn't load pickup availability
- Regular price
- 8.900 kr
- Sale price
- 8.900 kr
- Regular price
-
TÓLG er alhliða og djúp húðnæring úr þeyttri nautafitu og íslenskum jurtum.
nautafitan er úr íslenskum grasfóðruðum nautum. Hún er náttúrulega rík af A, D, K
og E vítamínum. Dýrafita er svipuð okkar eigin húðfitu og smýgur hún því
einstaklega vel inn og virkar vel á allar húðtegurndir. Nærandi eiginleikar tólgar
hafa getu til að bæta húðheilsuna til lengdar. Í vörunni er einnig örlítið af mct olíu
(fljótandi kókosolíu) til þess að skapa mýkri áferð. Engar fræ eða hnetu olíur eru
notaðar og engar ilmkjarnaolíur, en ilmurinn kemur úr jurtunum sjálfum.
Notist sem andlits eða líkams krem fyrir fullorðna og börn. Notist á útbrot, ör,
bólur, sár, exem og fleira. Áferð getur breyst við mismunandi hitastig. Varist
notkun ef um trjá- eða jurta ofnæmi er að ræða.
Öspin gefur græðandi, bólgueyðandi og verndandi eiginleika. Asparbrumin, sem
eru tínd snemma á vorin, innihalda náttúrulegar olíur sem gefa kreminu
dásamlegan ilm ásamt því að veita græðandi, bólgueyðandi og verndandi
eiginleika.
Innihaldsefni: Grasfóðruð íslensk nautatólg, mct olía (fljótandi kókosolía), íslenskar jurtir: ösp, birki. Varist ef um trjá- eða jurtaofnæmi er að ræða.




