Skilmálar

Greiðslur og verð
Allar greiðslur fara í gegnum öruggt vefsvæði Rapyd.
Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.
Vinsamlegast athugið að verð á netinu geta breyst án fyrirvara.
Eftir greiðslu á pöntun fær kaupandi staðfestingu í tölvupósti.
Allar pantanir eru að jafnaði afgreiddar næsta virka dag.

Sendingarmáti
Pantanir eru sendar með póstinum og gilda almennir afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar póstsins/Dropp um afhendingu vörunnar.
Biofit ehf tekur ekki ábyrgð á vörum eftir að þær hafa verið póstlagðar.
Sendingartími er 2-4 virkir dagar að jafnaði. Sendingar geta tekið fleiri daga ef eitthvað kemur upp á. 

Biofit ehf tekur ekki ábyrgð á að viðskiptavinir séu með rétt merkta póstkassa eða póstlúgur, í þeim tilfellum þar sem merkinga er ábótavant mun pósturinn senda pöntunina til baka og lendir tilfallandi kostnaður á kaupanda.

Skilafrestur eða endurgreiðsla
Skilafrestur pantana er 14 dagar frá kaupdegi og skal ósk um skil berast með tölvupósti á biofit@biofit.is
Einungis er hægt að skila vörum sem eru ónotaðar og/eða enn í upprunalegum umbúðum með órofið innsigli.
Endurgreiðsla fer fram þegar varan er komin aftur í hendur seljanda.
Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Frí heimsending um allt land ef þú verslar fyrir 15.000 kr. eða meira.
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan þann kostnað sem gæti komið upp við heimsendingu.

Persónuupplýsingar og trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Varnarþing
Viðskipti við Biofit ehf er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans, skal það rekið fyrir íslenskum dómstóli. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað.