JIRI Premium Himalayan Shilajit
Couldn't load pickup availability
- Regular price
- 13,990 kr
- Sale price
- 13,990 kr
- Regular price
-
Hvað er Shilajit
Shilajit er ríkt af steinefnum, fúlvínsýru og öðrum lífrænum efnasamböndum og hefur verið notað til heilsueflingar í þúsundir ára. Shilajit á sér langa sögu í Ayurveda-hefðinni og er í dag vinsælt fæðubótarefni um allan heim.
Efnið er svart og leirkennt, það finnst í klettum Himalajafjalla í miklli hæð og myndast á mörg hundruð árum við niðurbrot plantna undir miklum þrýstingi.
Jiri Premium Himalayan Shilajit er sótt í 4-5000 m. hæð, hreinsað, sólþurrkað og pakkað. Með öflugu eftirliti og rannsóknum tryggjum við ávallt bestu gæðin og 100% hreina vöru. Hver pakkning er merkt með nákvæmu magni fúlvínsýru sem mælt er á rannsóknarstofu fyrir pökkun en magnið er breytilegt eftir uppskerum.
Notkun
Fylgdu ráðlögðum dagskammti á umbúðum. Shilajit er yfirleitt leyst upp í volgu vatni, te eða kaffi, eða látið bráðna undir tungu. Farðu ekki yfir ráðlagðan dagskammt.
Varúð
Ef þú ert barnshafandi, með barn á brjósti eða tekur lyf skaltu ráðfæra þig við lækni áður en þú byrjar. Geymist þar sem börn ná ekki til.
Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreytts mataræðis og heilbrigðs lífsstíls.






