BIOFIT Kreatín (Creatine Monohydrate) 500gr
Couldn't load pickup availability
- Regular price
- 4.118 kr
- Sale price
- 4.118 kr
- Regular price
-
5.490 kr
Kreatín (Creatine Monohydrate)
500gr (100 skammtar)
Creatine Monohydrate er eitt vinsælasta bætiefnið fyrir þá sem stunda styrktarþjálfun, líkamsrækt og íþróttir. Kreatín hjálpar líkamanum að framleiða meiri orku í stuttum og krefjandi æfingum, sem getur aukið styrk, sprengikraft og frammistöðu.
Biofit kreatín er Micronized 200 Mesh Creatine, Micronized 200 mesh þýðir að kreatínið er malað í afar fínt duft. Það gerir það að verkum að það leysist mjög vel upp í vökva og líkaminn, sérstaklega meltingarkerfið getur tekið það auðveldlega upp. Þannig nýtist kreatínið betur í líkamanum og hjálpar vöðvunum að fá sem mestan ávinning af inntökunni.
Rannsóknir sýna að kreatín getur aukið líkamlega frammistöðu í endurteknum, high-intensity æfingum þegar tekið er daglega. Þess vegna er kreatín vinsælt meðal þeirra sem vilja byggja upp vöðvamassa, bæta árangur í ræktinni og æfa af meiri krafti.
Einnig benda rannsóknir einnig til þess að kreatín geti haft jákvæð áhrif á heilastarfsemi, þar sem það tekur þátt í orkuframleiðslu í heilafrumum. Sum gögn sýna möguleg áhrif á minni, einbeitingu og hugræna frammistöðu, þó frekari rannsóknir séu enn í gangi.
Helstu kostir kreatíns
• Styður við aukinn styrk og sprengikraft
• Getur bætt frammistöðu í styrktaræfingum
• Styður við vöðvavöxt samhliða þjálfun
• Eitt langmest rannsakaða bætiefni í heiminum
Notkun
Við mælum með 5 g af kreatíni daglega í vatn, safa eða próteindrykk. Margir taka stærri skammta allt upp í 20g daglega en ekki er mælt með að fara yfir það.


