Thelma Rut Svansdóttir

Þegar draumurinn verður að baráttu

Fyrstu skrefin

Þegar maður ákveður að reyna að eignast barn er auðvelt að halda að það gerist einfaldlega stuttu eftir að ákvörðunin hefur verið tekin. Ég hélt það líka. En leiðin mín varð allt önnur en ég hafði séð fyrir mér.

Eftir mörg ár, fimm IVF meðferðir, þrjá fósturmissa og ótal rannsóknir var ég orðin bæði líkamlega og andlega uppgefin. Á einum tímapunkti fann ég að ég þurfti að stíga aðeins til baka, ekki til að gefast upp, heldur til að gefa líkamanum og huganum svigrúm. Ég ákvað að taka pásu frá meðferðum í nokkra mánuði og nota þann tíma til að undirbúa mig eins vel og ég gat.

Það sem ég deili hér er mín persónulega reynsla. Frjósemi er flókið samspil hormóna, heilsu, erfða, streitu og margra annarra þátta og engin ein breyting tryggir árangur. Fyrir mig skipti þó máli að horfa á heildarmyndina og spyrja mig: Hvað get ég gert til að styðja betur við líkamann minn á þessu tímabili?

Að undirbúa líkamann og umhverfið

Ég áttaði mig fljótt á því að þetta snérist ekki bara um bætiefni og næringu, heldur líka það sem ég var umkringd daglega. Ég byrjaði því á einföldum breytingum á umhverfinu heima hjá mér. Ég skipti plastílátum að mestu út fyrir gler og tré, fór að lesa betur innihaldslýsingar á húðvörum og valdi mildari og hreinni vörur þar sem það átti við. Ég fór líka yfir heimilisvörur og ilmefni og reyndi að einfalda það sem ég gat.

Þessar breytingar voru ekki byggðar á hugmyndinni um fullkomnun, heldur á því að draga úr því sem mér fannst óþarft og óljóst. Fyrir mig skapaði það meiri ró. Þegar daglegt líf varð aðeins einfaldara fann ég líka að ég varð meðvitaðri um svefn, streitu og venjurnar sem höfðu áhrif á líðanina mína.

Bætiefnin sem ég valdi og af hverju

Þegar ég fór að skoða bætiefni lagði ég mesta áherslu á gæði, skýrt innihald og það að velja ekki of margt í einu af handahófi. Ég las mér til, ræddi við fagfólk þar sem það átti við og reyndi að byggja upp grunn sem hentaði mér. Margar af þeim vörum sem ég valdi fann ég hjá Biofit, einfaldlega vegna þess að þar fannst mér auðveldara að finna vörur með hreinu og skýru innihaldi.

Ein af þeim vörum sem ég valdi var Beef Organs for Her frá Dense Nutrition. Fyrir mig var hún hluti af heildstæðri nálgun þar sem ég vildi styðja við næringarástand, orku og daglega rútínu. Ég valdi hana ekki vegna loforða um kraftaverk, heldur vegna þess að mér fannst samsetningin skýr og henta mínum markmiðum á þessum tíma.

Auk þess var D-vítamín með K2 hluti af grunninum hjá mér, sérstaklega þar sem við búum við lítið sólarljós stóran hluta ársins. Ég valdi líka Methyl Folate sem hluta af undirbúningi, þar sem mér fannst það passa betur inn í þá nálgun sem ég vildi taka með næringu og bætiefnum.

Inositol varð líka hluti af minni rútínu, ásamt magnesium, glycine og L-theanine á kvöldin. Þar var markmiðið fyrst og fremst að styðja við betri kvöldrútínu, meiri ró og dýpri svefn. Fyrir mig skipti það miklu máli, því þegar svefninn batnaði fann ég að ég hafði meiri orku og betra jafnvægi yfir daginn.

Selenium, sink og omega-3 voru svo hluti af daglegum grunni, og á ákveðnu tímabili notaði ég líka steinefnaduft til að styðja við vökvajafnvægi. Collagen og Bone Broth notaði ég fyrst og fremst sem hluta af daglegri næringu og rútínu, ekki sem skyndilausn heldur sem viðbót sem hentaði mér vel.

Ég held að það sem skipti mestu máli fyrir mig hafi ekki verið ein stök vara, heldur að ég varð markvissari. Ég hætti að elta allt í einu og fór frekar að velja færri hluti sem mér fannst skynsamlegir, með skýru innihaldi og raunhæfum væntingum.

Næring, hreyfing og daglegt jafnvægi

Samhliða þessu fór ég að huga betur að mataræðinu. Mér fannst gagnlegt að nota LifeTrack appið til að átta mig betur á því hvað ég var raunverulega að fá af næringarefnum, og þá sá ég meðal annars að ég þurfti að huga betur að próteininntöku. Þar nýtti ég meðal annars hreint whey prótein frá Dense Nutrition sem hentaði mér vel í annasömum dögum.

Ég lagði líka meiri áherslu á reglulega hreyfingu, einfaldari máltíðir, minni neyslu á unnum matvörum, meiri og betri svefn. Þetta voru ekki dramatískar breytingar á einni nóttu, heldur róleg uppbygging á venjum sem studdu betur við mig. Í fyrsta sinn í langan tíma fann ég að ég var ekki bara að "halda út", heldur að byggja mig upp.

Það sem breyttist hjá mér

Þegar við fórum aftur í IVF meðferð upplifði ég að ég mætti inn í ferlið með meiri ró, meiri orku og meiri trú á eigin líkama. Ég get ekki fullyrt að ein ákveðin breyting hafi valdið því sem gerðist næst, en ég fann greinilegan mun á því hvernig mér leið og hvernig ég gekk inn í meðferðina.

Niðurstöðurnar voru betri en áður. Við fengum fleiri egg en áður, þau voru þroskaðri og í lok frjógvunar rammans fengum við þær fréttir sem við höfðum beðið lengi eftir. Við áttum heilbrigða fósturvísa. Ég varð svo ólétt í fyrsta sinn í mörg ár. Þó að sú ólétta hafi endað í missi nokkrum vikum síðar, var þetta engu að síður stórt skref fyrir mig, því í fyrsta sinn fann ég að líkaminn minn var að svara öðruvísi en áður.

Stuttu síðar fórum við aftur í uppsetningu. Í dag erum við nýbúin að eignast drenginn okkar sem við biðum svo lengi eftir. Fyrir mig varð þessi reynsla áminning um að undirbúningur snýst ekki um að stjórna öllu, heldur um að skapa líkamanum og huganum eins góðar aðstæður og hægt er.

Það sem ég hefði viljað vita fyrr

Ef ég gæti farið til baka myndi ég byrja fyrr að horfa á heildarmyndina. Ekki af því að lífsstílsbreytingar leysi allt, heldur af því að þær geta verið mikilvægur hluti af því að styðja við líðan og undirbúning á krefjandi tíma.

Það sem ég hefði helst viljað segja við sjálfa mig fyrr er þetta:

  • Byrjaðu á grunninum, svefni, næringu, hreyfingu og streitustjórnun. Áður en þú reynir að gera allt í einu.

  • Veldu vörur og bætiefni með skýru innihaldi og raunhæfum væntingum, frekar en að elta loforð um skjótan árangur.

  • Mundu að undirbúningur fyrir meðferð er ekki bara líkamlegur. Ró, von og sjálfsmildi skipta líka máli.

Ef þú ert á svipuðum stað og ég var, þá vona ég að sagan mín gefi þér hugmyndir og veiti ekki pressu. Það þarf ekki að gera allt fullkomlega. Stundum byrjar breytingin einfaldlega á því að hægja á sér, hlusta betur á líkamann og velja eitt skref í einu.

Vörur sem koma fyrir í greininni

Hægt er að skoða nánar þær vörur sem nefndar eru í greininni á Biofit.is. Mikilvægast er þó alltaf að velja það sem hentar þínum aðstæðum og leita ráðgjafar ef þú ert í meðferð, tekur lyf eða ert óviss um hvað á best við fyrir þig.